|
Síðan er búin að vera til síðan um vor 1995 og
hefur tekið alls konar breytingum í áranna rás. Hún byrjaði ákaflega frumstæð á meðan
það þótti rosalega kúl að hafa vefsíður með hvítum bakgrunni í
staðinn fyrir þennan gráa sem kom sjálfvalinn.
Síðan gekk hún í gegnum
svartaskeiðið (þegar allar töffarlegar síður voru með
svörtum bakgrunni og helst þannig upp settar að það var
ekki nokkur leið að lesa þær) og svo uppgötvaði ég
fjárans rammana og var óþægilega lengi fastur í þeim.
Hún færðist frá því að
vera búin til með Notepad eingöngu yfir í það að vera
hin hroðalegasta Front Page síða.
Vorið 2005 var hún síðan uppfærð enn og
aftur og tekin úr rammaforminu. Vona að einhverjum þyki hún í
lagi.
Síðan er mest megnis búin til með Frontopage
forritnu.
|