AðalsíðaLjósmyndunFjallgöngurStjörnuskoðun

   

Hver er hann?

Um vefinn

Gestabókin

Uppskriftir

Skógrækt í Fellsmörk

Allskonar

Ýmislegt annað
efni á vef

Gamla síðan

Atvinna

HSSR


Til baka

 

 

 

Einn á ferð

Hér og einhvers staðar hef ég verið á vefnum með heimasíðuna mína síðan 1995.

Þessi síða hefur tekið alls kyns breytingum í áranna rás.  Hún byrjaði ákaflega frumstæð á meðan það þótti rosalega kúl að hafa vefsíður með hvítum bakgrunni í staðinn fyrir þennan gráa sem kom sjálfvalinn.

Síðan gekk hún í gegnum svartaskeiðið (þegar allar töffarlegar síður voru með svörtum bakgrunni og helst þannig upp settar að það var ekki nokkur leið að lesa þær) og svo uppgötvaði ég fjárans rammana og var óþægilega lengi fastur í þeim.

Hún færðist frá því að vera búin til með Notepad eingöngu yfir í það að vera hin hroðalegasta Front Page síða.

Núna um vor 2005 er ég að uppgötva að það er hægt að nota hið ágæta Front Page en samt taka síðuna úr þessum römmum og hafa hana bara nokkuð snyrtilega.  Vona að einhverjum þyki hún í lagi.


svartasíðan

 

Netfang:
eirasi@eirasi.net

 
eir@si. Get yours at bighugelabs.com/flickr