Austurdalur 13 -15 okt 2006

Íbí mynd
Einhvern veginn varð maður að fara í
þessa ferð. Þetta var allt einhvern veginn þannig. Maður
bara varð því það kom ekkert annað til greina. Reyndar var
enginn tími til þess að fara þetta og allt í upplausn og óefni en
við skyldum samt fara.
Ég var búinn að ákveða að taka mér
frí allan föstudagseftirmiðdaginn til að geta nú almennlega
undrabúið mig. Það gekk eftir þannig að ég var búinn í
vinnunni svona einhvern tíman um þrjúleytið. Þá var ætt
fyrst í Hagkaup með innkaupalista einn sveran og verslað alls kyns.
Síðan var farið með kort í plöstun og svo loksins einhvern tíman um
fjögurleytið eitthvað var hægt að fara að tína eitthvað dót ofan í
bakpoka.
Það voru eitthvað dularfull skilaboð
um hvort ferðin væri trússferð eða ekki og tókum við HK að lokum með
okkur tvö sett af bakpokum svona til að vera við öllu búin.
Svo var haldið upp á M6 (sem eru höfuðstöðvar HSSR fyrir þá sem
ekkert vita og er Malarhöfði 6 en hljómar mikið meira eins og
eitthvað Djeims Bond dæmi svona Emm sex...)
Eftir að undrafarararnir voru búnir
að gera úttekt á nærfatnaði okkar nýliðanna var sest upp í stóra
fjallatrukkinn og ekið norður yfir Heiðar. Í Varmahlíð kom Íbí
sem sá um allt skipulag inn í hópinn og þá var komið myrkur.
Svo fór að rigna og svo kom rok. Og þá var loksins ekki komist
lengra á stóra fjallatrukkinum og við máttum yfirgefa hlýjuna og
fara út í myrkrið.
Vafamálið með trúss eða ekki trúss
snérist dálítið um hvort hægt væri að keyra yfir brú á Jökulsánni
Austari. Brú sem ég áttaði mig á að pa minn og ma mín ákváðu
fyrir 30 árum að væri göngubrú sem héldi ekki lítilli Cortínu.
En núna hafði brúnni eitthvað vaxið ásmegin með áunnum fúa og
annarri veðran og ekki talið óhugsandi að hún gæti haldið uppi
Nissan Patrol með kerru fulla af útilegudóti.
Fyrst gengum við fótgönguliðar yfir
og var nokk greinilegt að brúin tók okkur fagnandi því hún iðaði öll
í skinninu. Gekk upp og niður við hvert fótmál okkar
gönguhrólfanna. Svo héldum við niðri í okkur andanum á meðan
Patrolinn læddist yfir. Hraðinn var ekki mikill enda komst
bíllinn eiginlega ekki fyrir á brúnni á sínum 44 tommu risadekkum.
En hægt og rólega komst hann áfram og alveg yfir heilu og höldnu.
Það urði fagnaðarfundir og svo hélt hann sína leið áfram með allt
okkar hafurtask en við fótganandi í rigningunni, rokinu og myrkrinu
þannig að það var sem sagt mjög gaman. Enda gekk þetta allt
saman vel og einhvern tíman um miðja nótt komum við í skálann.
Í skálanum urðu fagnaðarfundir þegar
við nafnarnir hittum fyrir kaffikönnu og var helt uppá með blandaðri
tækni. Aðrir hófu matargerð af kappi og elduðu sumir pasta með
blóðmör en aðrir bara pasta með einhverri hallæris pastasósu.
Svo var farið að sofa einhvern tíman undir morgunn.
Og einhvern tímann eftir að morguninn
var hálfnaður var vaknað aftur. Það tók tímann sinn að komast
af stað enda þurftu sumir sitt egg og beikon í morgunmat áður en
mögulegt var að takast á við verkefni dagsins. Loks var arkað
af stað áfram upp með Jökulsá Austari svona þegar hádegið var við
það að verða gamalt. Ferðin gekk vel en samt ekkert of hratt.
Það þurfti að vaða nokkra læki og svo þurfti að stoppa út af
hælsærum og einnig vildu sumir fara að hátta sig þegar gula fíflið
sýndi sig.

Haukur og fleiri að spá í kortið og svona alls konar

Matarstopp til að kýla vömbina / HK tók þessa
mynd annars en hann eirasi hina sko
En svo kom allt í einu myrkur og svo
varð gilið eitthvað bratt með alls konar klettum og lífshættum,
birkikjarri og annarri óáran. Varð það úr að brotist var uppúr
gilinu og gengið á leiðis til Patrolsins og stóra fjallatrukksins
sem beið okkar og flutti okkur hálf úppgefin til Laugafells þar sem
svamlað var í lauginni fram eftir nóttu og loks grillað einhvern
tíman undir morgunn.
Svo var lagt af stað heimleiðis
akandi bara ágætlega snemma eftir að einhver önnur björgunarsveit
hafði gert rúmrusk á óguðlegum tíma rétt eftir að sólin kom upp.
En sem smjatt. Þetta var mikið
gaman og roslega vel heppnað og minn bara sáttur við að vera kominn
í svona björgunarsveit!
Ef einhver er forvitinn að vita hvað
var labbað þá sést það hér að neðan og hægt að smella til að fá
stærra kort upp.

Og svo eru til myndir á myndasíðum:
Björk
HSSR
síðan