|
4. janúar
2009 |
| Vetur á Fellsmörk |

Vetrarlegir hestar í
girðingunni fyrir neðan Álftagróf
Snjór var á Fellsmörk á jólaföstu eins og
víðast um allt land. Nú eftir áramótin
hefur hins vegar allan snjó tekið upp.
Fyrstu helgina í janúar rigndi sem aldri
fyrr. Vegurinn var farinn að skemmast
og að verða ófær undir Hlíðarbraut en var
enn vel jeppafær fyrir vestan Fellið á
laugardeginum. Hvort það breyttist
seinna um helgina er ekki vitað.
Sigurjón í Pétursey mun væntanlega laga
skemmda vegi en þeir sem hyggja á
vetrarferðir í Fellsmörk kanna oft færðina
hjá Sigurjóni áður en farið er af stað.
Sjá myndir frá
jólaföstu í Fellsmörk á
myndasíðu
|
|
| |
|
Ýmislegt gengur
á þegar veður og náttúruöfl eru annars vegar |
Vatnavextir í
september 2008 - Ljósm. Einar Ragnar
Um mánaðamótin júlí ágúst gerði rok
stórrigningar. Árnar flæddu og
hjólhýsi fauk.
Sjá myndir á
myndasíðu
Aftur gerði stórrigningar í september og
voru það reyndar einhverjir mestu
vatnavextir sem Sunnlendingar hafa lent í
lengi. Meira og minna allir vegir á
flatlendi í Fellsmörk eyðilögðust.
Sjá myndir á
myndasíðu
|
|
|
Myndir frá
gróðursetningardeginum
Það skiptust á skin og skúrir þann 21. júní
þegar sameiginleg gróðursetning var á
Fellsmörk. Hannes var með myndavélina
og myndir eru komnar á vefinn.
Myndasíða
|
|
| 8. júní
2008 |
| Sameiginleg
gróðursetning laugardag 21. júní |
Árleg sameiginleg gróðursetning á Fellsmörk
verður laugardag 21. júní. Mæting kl.
13:00 við bústað Helgu og Auðuns Keldudal
nr. 2.
Bréf til kynningar (PDF)
|
|
| 22. apríl
2008 |
| Af aðalfundi
Fellsmerkur 3. apríl 2008 |

Aðalfundur Fellsmerkur
var haldinn að Elliðavatni 3 apríl
síðastliðinn. Fundurinn var
tvískiptur. Fyrir kaffihlé voru hefðbundin
aðalfundarstörf en eftir kaffi var kynning á
GPS mælingum sem fóru fram síðasta haust og
unnið hefur verið úr í vetur. Gestur
fundarins, Elín Erlingsdóttir frá Landnotum
kynnti mælingarnar. Skipulagið var
borið undir fundinn og var það samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum.
Skýrsla stjórnar (PDF)
Myndir frá fundinum
|
|
| 19. mars 2008 |
| Aðalfundur
Fellsmerkur 3. apríl 2008 |
Stjórn Félags landnema á
Fellsmörk boðar til aðalfundar 3. apríl
2008, kl. 20. Fundurinn verður haldinn í
samkomusal Skógræktarfélags Reykjavíkur að
Elliðavatni
Fundarboð (PDF)
Aðkoma að Elliðavatni er frá Suðurlandsvegi
við Rauðhóla:

Bærinn að Elliðavatni:

|
|
| 10. mars 2008 |
| Ófærð á
Fellsmörk |
Hjalti og Júlía voru á ferð á austursvæðinu
og Sveinn Björnsson var með sínu fólki á
vestursvæðinu. Ófærð var mikil.
Um austursvæðið var þetta að segja:
"Þetta telst nú líklega ekki fréttnæmt en ég
var í Fellsmörkinni í dag og vegurinn á
vestursvæðinu er alveg horfinn frá
varnargarði og vestur að Einbúa. Kíkti ekki
á austursvæðið.
Sendi eina mynd
úr "Mörkinni" til gamans. Hún er tekin á
aurunum fyrir neðan Gilsbrautina."
Um vestursvæði var svipaða sögu að segja:
"Gerðum okkur
ferð austur í Mýrdal um síðustu helgi .
Vissum að mikill snjór væri á svæðinu þó
mikið hefði tekið upp frá síðustu helgi.
Bjuggum okkur af stað með gönguskíði og
snjóþotur til að koma vistum
inneftir.Komumst að Álftagróf en þaðan
er algerlega ófært inn í Krók.gengum
þaðan og gekk það vel , þrátt fyrir að
myrkur væri að skella á og
éljahraglandi. Miklir skaflar þar sem
gróður hefur hamið snjóinn.
Ef fólk er að
hugsa um páskaferð austur ætti það
að fylgjast með og spá í snjómagn og
útbúa sig miðað við það.
Á
laugardeginum og sunnudeginum fengum við
allveg frábært veður logn ,sól og allt
eins og Mýrdalurinn hefur best upp á að
bjóða. Notuðum veðrið og gengum um
svæðið og inn í gil eins langt og hægt
var að komast."
Fleiri myndir
|
|
| 11. febrúar 2008 |
| Gróðursetning
2007 |
Plöntunefnd hefur gefið út árlega skýrslu
sína og er hún núna aðgengileg á vefnum.
Skýrsla plöntunefndar fyrir árið
2007 (PDF skjal)
Lokatölur gróðursetningar 2007 (Excel skjal)
|
|
3. október 2007
|
| Algjörlega ófært á vestursvæðinu |
Sigurjón í Pétursey hafði samband í dag.
Hann hafði byrjað lagfæringar á veginum á
vestursvæðinu. S.l. nótt (aðfararnótt
þriðjud. 2. okt.) gerði mjög mikið
vatnsveður þannig að allt sem búið var að
gera eyðilagðist. Varnargarðurinn sem
Vegagerðin gerði fyrir ca. 5 - 7 árum fór í
sundur og mun Einbúinn vera umflotinn!
Vegurinn að vestursvæðinu er þannig
með öllu ófær. Sigurjón setti
grjóthnullunga yfir veginn þar sem hann fer
yfir varnargarðinn (nálægt ruslagámnum) til
þess að hindra að einhver lendi í
hremmingum.
Á austursvæðinu hafa einnig orðið töluverðar
vegaskemmdir. Fyrir þessar
stórrigningar voru vegir þar vel færir en
þeir hafa skemmst eitthvað í þessum
vatnavöxtum.
|
|
| 1.
október 2007 |
| GPS mælingar ganga vel |
|
Að
sögn Elínar hjá Landnotum gengu mælingarnar
mjög vel í
frábæru haustveðri 25. september
síðastliðinn. Hún hafði mælt sér mót við 2
brautarstjóra sem gátu mætt þann dag, þá
Kristinn Helgason fyrir Heiðarbraut og
Hjalta Elíasson fyrir Hlíðarbraut, Keldudal
og Krók).
Mældar voru lóðir við Heiðarbraut,
Hlíðarbraut, í Keldudal og lóðin Krókur 11.
Mælt var í tæpar 9 klst samfellt, fram í
myrkur
Ef hægt verður að ná brautarstjórum við
Hólsbraut og Gilbraut austur sama dag verður
hægt að klára það sem eftir er á einum degi…
ef veður verður jafn hagstætt og þennan dag.
Það mun ekki verða unnið úr mælingunum
fyrr en stafræni kortagrunnurinn er kominn
en hér að neðan er skjámynd sem sýnir stöðu punktanna.
|
 |

Hægt að smella á myndina til að fá hana
stóra.

Elín við mælingar á Fellsmörk 25. september
2007 - Ljósm. Kristinn Helgason
|
|
|